Fara í efni

Endurvinnsla aukin á Seltjarnarnesi

Í dag, fimmtudaginn 12. maí, fékk starfsfólk á bæjarskrifstofu Seltjarnarness afhenta fyrstu plastpokana fyrir endurvinnanlegar plastumbúðir. Pokarnir, sem eru úr 100% endurunnu plasti, munu vera bornir á hvert heimili á Seltjarnarnesi, ásamt kynningarefni um tilraunaverkefni sem SORPA og Seltjarnarnes standa saman að
Alda Gunarsd´ðottir, Gyða Jónsdóttir, Ingibjörg Ölvisdóttir og Gyða BjörnsdóttirÍ dag, fimmtudaginn 12. maí, fékk starfsfólk á bæjarskrifstofu Seltjarnarness afhenta fyrstu plastpokana fyrir endurvinnanlegar plastumbúðir. Pokarnir, sem eru úr 100% endurunnu plasti, munu vera bornir á hvert heimili á Seltjarnarnesi, ásamt kynningarefni um tilraunaverkefni sem SORPA og Seltjarnarnes standa saman að, mánudaginn 23. maí. 

Aðilar frá SORPU upplýstu starfsfólk bæjarins um þetta áhugaverða endurvinnsluverkefni með það að markmiði að auðvelda þeim að aðstoða íbúa og veita upplýsingar í framhaldinu.  

Tilraunaverkefnið miðar að því að auka hlutfall plastumbúða sem fara til endurvinnslu frá íbúum á Seltjarnarnesi. Árlega má ætla að um 130 tonn af plasti fari í urðun frá íbúum með almennu heimilissorpi en aðeins um 7 tonn berast til endurvinnslu í gegnum grenndargáma og endurvinnslustöðvar. 

Gert er ráð fyrir að íbúar flokki plastumbúðir í pokana. Þegar poki er fullur er bundið fyrir og hann settur með almennu sorpi í gráu tunnuna. Í móttökustöð SORPU eru pokarnir svo flokkaðir vélrænt frá öðrum úrgangi og plastið sent til Svíþjóðar til endurvinnslu. 

Markmið verkefnisins er að meta gæði og magn plasts sem berst frá sveitarfélaginu til endurvinnslu og þann kostnað sem fellur til vegna meðhöndlunar þess, ásamt því að kanna möguleikann á að nota núverandi hirðukerfi til söfnunar á plastumbúðum. Kostur fyrirkomulagsins er að ekki þarf að bæta við sérstökum tunnum eða fjölga ferðum sorphirðubíla um götur bæjarfélagsins. 

Niðurstaða verkefnisins mun nýtast SORPU og sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu til að meta mismunandi söfnunaraðferðir út frá árangri í endurvinnslu og kostnaði. Það auðveldar ákvarðanatöku um framtíðarlausnir á söfnun plastefna á höfuðborgarsvæðinu. 

Það er von samstarfsaðilanna að sem flestir íbúar sér fært að vera með í mikilvægu verkefni og gefa plastumbúðum áframhaldandi hlutverk.  

 
Endurvinnsla plastumbúða

Nánari upplýsingar um verkefnið eru veittar á heimasíðum SORPU og Seltjarnarnesbæjar.
Á myndinni má sjá starfsmenn Seltjarnarnesbæjar þær Öldu Gunnarsdóttur, Gyðu Jónsdóttur og Ingibjörgu Ölvisdóttur ásamt Gyðu S. Björnsdóttur sérfræðingi hjá SORPU með pokana sem dreift verður á hvert heimili á Seltjarnarnesi.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?