Undanfarið hafa staðið yfir viðgerðir á vestur inngangi Eiðistorgs en í kjölfar mikils veðurágangs síðasta vetur var burðarvirkið farið að láta á sjá
Undanfarið hafa staðið yfir viðgerðir á vestur inngangi Eiðistorgs en í kjölfar mikils veðurágangs síðasta vetur var burðarvirkið farið að láta á sjá.
Þegar hafist var handa við viðgerðir kom í ljós að sperrur voru mun verr farnar en haldið var í fyrstu og þakið nánast að hruni komið.
Ráðgert er að viðgerðum ljúki í síðari hluta ágústmánaðar.