Í tilefni af Degi leikskólans sem haldinn verður hátíðlegur í 10. sinn í dag þá ætla börn og kennarar í Leikskóla Seltjarnarness að fjölmenna á Eiðistorg kl.15:00 og syngja saman.
Í tilefni af Degi leikskólans sem haldinn verður hátíðlegur í 10. sinn í dag þá ætla börn og kennarar í Leikskóla Seltjarnarness að fjölmenna á Eiðistorg kl.15:00 og syngja saman.
Það eru tónmenntakennarar Ólöf María Ingólfsdóttir og Sesselja Kristjánsdóttir sem sjá um undirspil og leiða sönginn.
Allir eru hjartanlega velkomnir og vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að koma á torgið og taka þátt í söngnum