Í ljósi samkomubanns og neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 veirunnar er aukin áhersla á samskipti og þjónustu í gegnum síma og með tölvupósti. Húsnæði bæjarskrifstofu og félagsþjónustu verður lokað fyrir utanaðkomandi nema í sérstökum tilvikum. Sjá nánar:
Aukin áhersla á samskipti og þjónustu í gegnum síma og með tölvupósti
Í ljósi neyðarstigs almannavarna og samkomubanns sem nú gildir vegna COVID-19 veirunnar eru íbúar og aðrir viðskiptavinir sem eiga erindi við stofnanir Seltjarnarnesbæjar hvattir til að senda tölvupóst eða hringja til að takmarka komur á starfstöðvar. Lögð er áhersla á að tryggja þá starfsemi og þjónustu sem þarf að haldast órofin á öllum stigum viðbragðsáætlunar Seltjarnarnesbæjar.
Bæjarskrifstofa, Austurströnd 2 er lokuð fyrir utanaðkomandi nema í alveg sérstökum tilvikum.
- Símanúmer þjónustuvers Seltjarnarnesbæjar: 59 59 100
- Tölvupóstur Seltjarnarnesbæjar: postur@seltjarnarnes.is
- Hægt er að skila gögnum og reikningum í gegnum póstlúgu.
Skrifstofa Félagsþjónustu / Fjölskyldusviðs er einungis opin fyrir þá sem eiga pantaða pantaða viðtalstíma
- Bent er á símatíma starfsmanna til að óska eftir viðtali.
- Nánari upplýsingar um símatíma: http://www.seltjarnarnes.is/thjonusta/felagsthjonusta
- Hægt að hafa samband við starfsmenn með tölvupósti.
Íbúum og öðrum viðskiptavinum Seltjarnarnesbæjar er bent á eftirfarandi:
- Ítarlegar upplýsingar um starfsemi og starfsmenn sveitarfélagsins er að finna á www.seltjarnarnes.is.
- Umsóknir og gögn má einnig nálgast á MÍNAR SÍÐUR: https://innskraning.island.is/?id=minarsidur.seltjarnarnes.is.
- Seltjarnarnesbær á Facebook þar sem settar eru inn allar almennar tilkynningar og upplýsingar fyrir íbúa. https://www.facebook.com/Seltjarnarnesb%C3%A6r-139943012801