Á aðalfundi SSH sem haldinn var í Félagsgarði, Kjós, föstudaginn 20. nóvember 2015 var einkanlega fjallað um fjármál sveitarfélaganna og fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Á aðalfundi SSH sem haldinn var í Félagsgarði, Kjós, föstudaginn 20. nóvember 2015 var einkanlega fjallað um fjármál sveitarfélaganna og fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.![]() Fundurinn samþykkti eftirfarandi áskorun vegna fjárhagslegra samskipta ríkis og sveitarfélaga Sveitarfélög gegna margvíslegu og mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þau sjá um nærþjónustu við íbúa sína, stuðla að valddreifingu, auka hagkvæmni og styrkja lýðræðið. Mikilvægt er að leggja áherslu á efnahagslegan styrk þeirra og fjárhagslegt sjálfstæði til að þau standi undir þessu hlutverki. Það verður gert með bættum samskiptum við ríkið og sanngirni og jafnræði í skiptingu tekjustofna á milli ríkis og sveitarfélaga. Því skorar aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum á tekjustofnum sveitarfélaga í samræmi við það sem hér að framan greinir til að tryggja að þeir séu í samræmi við þau mikilvægu verkefni sem sveitarfélögum eru falin í opinberri þjónustu við almenning í landinu.” |