Fara í efni

Afkoma mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir hjá Seltjarnarnesbæ

Góð rekstrarniðurstaða og mun betri en samkvæmt fjárhagsáætlun

Ársreikningur Seltjarnarnesbæjar 2014


Góð rekstrarniðurstaða og mun betri en samkvæmt fjárhagsáætlun
Samkvæmt samanteknum ársreikningi Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2014 varð rekstrarniðurstaða bæjarins jákvæð um 434 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir rekstrarafgangi upp á 12 m.kr. Meginskýringin á þessari góðu niðurstöðu eru hærri tekjur en áætlun gerði ráð fyrir.  

Traust fjárhagsstaða – bætt greiðslustaða  og  lækkun skulda
Heildarskuldir og skuldbindingar í árslok námu alls 1.539 m.kr. og lækkuðu um 161 m.kr. á árinu. Hreint veltufé í árslok nam 958 m.kr. og hækkaði um 365 m.kr. frá fyrra ári. Veltufjárhlutfall var 4,2 í árslok 2014 (2013: 1,8). Skuldahlutfallið lækkaði milli ára úr 55% í 45%, sem er með því lægsta á landinu. 
Góð rekstrarafkoma ársins styrkir enn frekar trausta fjárhagsstöðu bæjarins og endurspeglar þann stöðugleika sem ríkt hefur við stjórn bæjarins á liðunum árum. 

Mikill agi í rekstri og gott starfsfólk lykillinn að þessum góða árangri
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri er að vonum ánægð með þessa jákvæðu niðurstöðu. „Ég er afar ánægð að geta lagt fram ársreikning fyrir árið 2014 með svo góðri rekstrarniðurstöðu og sterka fjárhagsstöðu. Þennan árangur vil ég ekki síst þakka frábæru starfsfólki bæjarins og miklum aga í rekstri.“

Áframhaldandi fjölgun íbúa
Íbúum hefur fjölgað síðastliðin þrjú ár og nam fjölgunin 0,9% milli áranna 2013 og 2014. Áframhaldandi fjölgun íbúa mun treysta tekjustofna bæjarins, stuðla að betri nýtingu innviða og styrkja þá viðleitni að halda álögum á bæjarbúa jafnan í lágmarki.

Í lykiltölum kemur fram að skatttekjur á árinu 2014 námu 568 þús. kr. á íbúa og skuldir á íbúa í árslok 2014 námu 122 þús. kr. Til samanburðar námu meðalskuldir á íbúa höfuðborgarsvæðisins í árslok 2013 1.730 þús. kr. eða 10 sinnum meira en á íbúa á Seltjarnarnesi.

Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri segir að stærsta verkefni bæjarins á þessu ári sé bygging 40 rýma hjúkrunarheimilis, en bygging þess hefst næsta haust.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?