Fara í efni

Framboðsfrestur til bæjarstjórnarkosninga í Seltjarnarnesbæ er til kl. 12 föstudaginn 10. apríl nk.

Yfir­kjör­stjórn tekur við fram­boðs­list­um til bæjarstjórnarkosninga á bæjarstjórnarskrifstofu Seltjarnarnesbæjar, að Austurströnd 5, kl. 11.00-12.00 þann 10. apríl 2026.

Bæjarstjórnarkosningar í Seltjarnarnesbæ fara fram laugardaginn 16. maí 2026

Yfirkjörstjórn:

  • Árni Ármann Árnason, formað­ur, net­fang: arni@libralaw.is
  • Erlendur Gíslason
  • Gunnlaugur Ástgeirsson

Framboðsfrestur:

Föstu­dag­inn 10. apríl 2026 kl. 12:00, renn­ur út frest­ur til að skila fram­boðs­list­um vegna bæj­ar­stjórn­ar­kosn­inga í Seltjarnarnesbæ, sem verða þann 16. maí 2026.

Yfir­kjör­stjórn mun þá taka við fram­boðs­list­um á bæjarstjórnarskrifstofu Seltjarnarnesbæjar, að Austurströnd 5, kl. 11.00-12.00.

Eng­inn má bjóða sig fram á nema ein­um lista.

Hverj­um fram­boðs­lista skal fylgja:

  • Stað­fest­ing á skráðu heiti og lista­bók­staf nýrra stjórn­mála­sam­taka.
  • Yf­ir­lýs­ing allra fram­bjóð­enda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á list­ann, und­ir­rit­uð eig­in hendi.
  • Nöfn tveggja um­boðs­manna
  • Með­mæl­endalisti – að lág­marki 40 og að há­marki 80 með­mæl­enda.

Rafrænt meðmælakerfi:

Rafrænt meðmælakerfi hefur verið opnað sbr. auglýsingu á vef landskjörstjórnar. Í meðmælakerfinu geta kjósendur með lögheimili á Seltjarnarnesi gefið yfirlýsingu um stuðning við framboð í sveitarstjórnarkosningunum á Seltjarnarnesi. Rafræn söfnun meðmæla fer fram á island.is og skulu bæði þeir sem safna meðmælum og meðmælendur nota rafræn skilríki við innskráningu á island.is.

Varðandi nánari skilyrði og fyrirmæli um framboð til sveitarstjórnarkosninga er vísað til VII. kafla kosningalaga nr.112/2021 og reglugerðar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista fyrir kosningar nr. 254/2024. Einnig er vísað til upplýsinga sem fram koma á vef landskjörstjórnar landskjorstjorn.is.

Fundur um yfirferð framboðslista
 

Yfir­kjör­stjórn boð­ar til fund­ar með um­boðs­mönn­um fram­bjóð­enda þann 13. apríl 2026, kl. 11.00, á bæjarskrifstofu Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 5 þar sem hún úr­skurð­ar um fram­komna fram­boðs­lista.

Þeg­ar yfir­kjör­stjórn hef­ur úr­skurð­að um fram­boð­in mun hún aug­lýsa fram­boðs­lista, bók­staf list­anna og nöfn fram­bjóð­anda á hverj­um lista.

Kjörskrá

Kjör­skrá vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­a 16. maí 2026 verð­ur að­gengi­leg í þjón­ustu­veri bæj­ar­skrif­stof­u Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 5, frá og með 24. apríl nk. 

Yfirkjörstjórn Seltjarnarnesbæjar

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?