Fara í efni

Dagforeldrar

Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi en Seltjarnarnesbær sér um leyfisveitingar og sinnir lögbundnu eftirliti með starfseminni auk ráðgjafar til dagforeldra og foreldra.

Dagforeldrar á Seltjarnarnesi veita börnum daggæslu og sjá sjálfir um skráningu og innritun barna. Skólanefnd Seltjarnarness veitir starfsleyfi til dagforeldra og sinnir lögbundnu eftirliti með starfseminni eins og kveðið er á um í reglugerð félagsmálaráðuneytisins.

Umsókn um niðurfellingu á gjaldi vegna dagvistunar barns hjá dagforeldri fer fram í gegnum mínar síður.

Starfandi dagforeldrar á Seltjarnarnesi

Skráðir dagforeldrar eru tveir á Seltjarnarnesi. Viðtalstímar þeirra eru frá kl. 12:00-15:00 alla virka daga.

Nafn Heimilisfang Sími Starfstími
Anna Jónína Kristjánsdóttir Melabraut 19 561 1607 / 848 6501 7:30 - 14:00
Ágústa H. Vignisdóttir Unnarbraut 17 561 2617 7:45 - 15:15

 

Framlög vegna dvalar barna hjá dagforeldrum

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkir að greiða mánaðarlega í ellefu mánuði á ári vissa fjárhæð vegna dvalar barna með lögheimili á Seltjarnarnesi. Bæjarstjórn ákveður fjárhæð hverju sinni að fenginni tillögu Skólanefndar. 

Skilyrði fyrir greiðslu framlags eru eftirfarandi:

  • Að barnið eigi lögheimili á Seltjarnarnesi.
  • Að viðkomandi dagforeldri hafi starfsleyfi samkvæmt reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005
  • Að barn hafi náð 12 mánaða aldri.
  • Að barnið sé slysatryggt.
  • Að foreldri sæki um niðurgreiðslur til Seltjarnarnesbæjar, á þar til gerðu eyðublaði.

Mánaðarleg fjárhæð:

Í gjaldskrá bæjarins má sjá þá fjárhæð sem greidd er með hverju barni út frá mismunandi forsendum.

  • Greitt er fyrir hálfan og heilan mánuð og miðast greiðslan við 1. og 15. hvers mánaðar.
  • Leggja skal fram fjölskylduvottorð í tilviki einstæðra foreldra og námsvottorð í skóla í tilviki námsmanna.
  • Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá systkinaafslátt fyrir barn/börn sem eru í leikskóla og/eða í Skjóli / Frístund.
  • Kaupandi þjónustu nýtur þess afsláttar sem kemur honum best samkvæmt uppfylltum skilyrðum.
  • Afsláttur leggst ekki við afslátt.

Eftirlit og leyfisveitingar

  • Sviðsstjóri fjölskyldusviðs annast leyfisveitingar og veitir dagforeldrum ráðgjöf og sér um eftirlit.
  • Reglulegar heimsóknir eru 2-3 á ári og oftar á reynslutíma dagforeldris sem og ef upp koma athugasemdir og/eða kvartanir frá foreldrum.
  • Val á dagforeldri er á ábyrgð foreldra og því er mikilvægt að þeir kynni sér vel þjónustuna sem í boði er s.s. allan aðbúnað, leikfangakost, hvíldaraðstöðu og leikaðstöðu bæði inni og úti.
  • Foreldrar eru hvattir til að ræða við dagforeldri barnsins ef umönnun eða aðbúnaði er ábótavant.
  • Foreldrar skulu gera skriflegan samning við dagforeldrið um dvalartíma og gjald fyrir dvölina
Síðast uppfært 29. nóvember 2022
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?